14
Zotero sett upp á Windows stýrikerfi Athugaðu að þú þarft að vera í Firefox til að geta notað Zotero. Zotero hjálparforritið samanstendur eiginlega af tvem forritsbútum. Annar keyrir í vafranum þínum og heldur utanum vistaðar heimildir, og hinn er eins konar brú þaðan og yfir í ritvinnsluforrit (t.d. Word) Fyrri forritsbútur: 1. Farðu á www.zotero.org og smelltu á (efst til hægri) 2. Þú gætir þurft að smella á Leyfa / Allow 3. Þegar þessi rammi birtist smellirðu á Setja inn núna 4. Textinn Zotero viðbót verður sett upp þegar vafrinn verður endurræstur ætti að birtast í vafranum þínum, en þú getur beðið með að endurræsa þangað til þú ert búin/n að ná í seinni forritsbútinn.

Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

  • Upload
    others

  • View
    7

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Zotero sett upp á Windows stýrikerfi Athugaðu að þú þarft að vera í Firefox til að geta notað Zotero.

Zotero hjálparforritið samanstendur eiginlega af tvem forritsbútum. Annar keyrir í vafranum þínum

og heldur utanum vistaðar heimildir, og hinn er eins konar brú þaðan og yfir í ritvinnsluforrit (t.d.

Word)

Fyrri forritsbútur: 1. Farðu á www.zotero.org og smelltu á

(efst til hægri)

2. Þú gætir þurft að smella á Leyfa / Allow

3. Þegar þessi rammi birtist smellirðu á Setja inn núna

4. Textinn Zotero viðbót verður sett upp þegar vafrinn verður endurræstur ætti að birtast í

vafranum þínum, en þú getur beðið með að endurræsa þangað til þú ert búin/n að ná í seinni

forritsbútinn.

Page 2: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Seinni forritsbútur: 1. Farðu aftur á www.zotero.org og smelltu á Install Zotero Word processor plugins.

2. Veldu efsta möguleikann:

3. Þá ætti ný síða að opnast, og þar velur þú þann hlekk sem passar fyrir ritvinnsluforritið og

stýrikerfið þitt. Word notendur sem eru með Windows smella t.d. á Install the Word for

Windows Plugin for Zotero

4. Þú gætir þurft að smella á Leyfa / Allow

Page 3: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

5. Þegar þessi rammi birtist smellirðu á Setja inn núna

6. Tekstinn Zotero viðbót verður sett upp þegar vafrinn verður endurræstur ætti að birtast í

vafranum þínum, og þú ættir að smella á Endurræsa / Restart

7. Opnaðu ritvinnsluforritið hjá þér.

8. Í Word ætti þá að vera flipi sem heitir Add-Ins með þessari valmynd, sem gerir þér kleift að

setja inn tilvísanir (heimildir) og búa til heimildaskrá.

Page 4: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Heimildir fluttar inn í Zotero Þessar leiðbeiningar miða við að notað sé Word á Windows, og að búið sé að setja Zotero upp á

tölvunni.

1. Farðu á þá síðu sem inniheldur upplýsingar um þá heimild sem þú vilt vitna í. Þetta getur

verið síða í gagnasafni, en einnig heimasíða fyrirtækis, frétt á vef eða rafræn útgáfa skýrslu,

svo eitthvað sé nefnt. Hér er tekið dæmi úr EBSCO Host gagnagrunninum. Vertu á vefsíðu

greinarinnar. Ekki

opna pdf útgáfuna.

2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

því sem við á, þ.e. hvernig heimild Zotero býr sig undir að grípa):

Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef

ekkert tákn birtist ertu líklega ekki með fræðilega heimild á vefsíðunni og Zotero getur ekkert

gripið. Hinsvegar má handfæra slíkar heimildir inn í Zotero)

Page 5: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

3. Grár gluggi birtist þá neðst í hægra horni vafrans:

Glugginn sést á meðan Zotero vistar heimildina en hverfur svo . Þegar hann hverfur er búið

að vista þær upplýsingar sem Zotero hefur þekkt.

4. Smelltu á Zotero-hnappinn neðst í hægra horni vafrans, og staðfestu að heimildin sé vistuð

(sést í miðjuglugganum):

Lengst til hægri geturðu skrunað niður og skoðað hvort allar upplýsingar hafa skilað sér rétt.

Ef þú vilt laga eitthvað geturðu smellt á þann texta sem er rangur og fyllt rétt út.

Page 6: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Að vista vefsíður og PDF skjöl Zotero grípur aðeins fræðilegar heimildir og sýnir aðeins vistunar táknin á þeim vefsíðum sem Zotero

telur fræðilegar. Zotero greinir ekki venjulegar vefsíður og PDF-skjöl sem fræðilegar heimildir en þrátt

fyrir það þarf stundum að vera hægt að vísa í þær.

Þessar leiðbeiningar miða við að Firefox vafrinn sé notaður, og að búið sé að setja Zotero upp á

tölvuna.

Að vista vefsíður 1. Farðu inn á vefsíðu sem þú vilt vista sem heimild sem gefur ekki upp tákn til að smella á. Til

dæmis bloggsíða eða fréttamiðill.

2. Til að vista vefsíðuna þarf að opna Zotero með því að smella á Zotero merkið neðst í hægra

horni vafrans.

3. Smeltu svo á táknið fyrir „Create New Item From Current Page“

4. Þá vistast síðan sem vefsíða/web page inn í Zotero. Zotero reynir að grípa allar þær

skráningarupplýsingar sem eru á síðunni en þú gætir þurft að handfæra upplýsingar um

Page 7: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

síðuna inn í Zotero, t.d. höfund og dagsetningu (ártal).

5. Zotero vistar einnig skjámynd af vefsíðunni eins og hún birtist þegar þú vistar hana.

Að vista PDF-skjöl Til að vista PDF-skjöl þarft þú að gera nákvæmlega eins og fyrstu fjögur skrefin í vistun vefsíðu með

smá framhaldi.

1. Til að vista PDF-skjal þarftu að smella á táknið fyrir „Create New Item From Current Page“. Þá

vistast PDF-skjalið en engar skráningarupplýsingar um það. Ekki er t.d. hægt að setja inn

höfund né dagsetningu. Zotero getur ekki lesið innihaldsupplýsingar úr PDF-skjalinu og þarft

þú því að handfæra þær inn. Eina sem Zotero gerir er að vista skjalið og gefa því nafn.

Page 8: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

2. Til þess að fá inn möguleikann á því að fylla inn skráningarupplýsingar um PDF-skjöl þarft þú

að hægri smella á skrána og velja „Create Parent Item from Selected Item“.

3. Þá verður til svokallað „foreldri“ sem býður upp á að fylla inn skráningarupplýsingar um

skjalið, t.d. höfund, titil, dagsetningu, o.fl. PDF-skjalið færist þá undir foreldrið.

4. Zotero vistar skjalið sem „Web Page“ en það er hægt að breyta því yfir í annað (Item Type),

t.d. Journal Article, Book, Document, Report, o.fl. og við það breytast skráningarmöguleikar í

þá sem eiga við í hverju tilfelli.

5. Þar sem APA-staðallinn er búinn til fyrir félagsvísindasvið hefur ekki verið hugsað fyrir því

hvernig á að vitna í staðla (ekki er hægt að velja staðal sem tegund heimildar). Skásta leiðin til

að leysa þetta í Zotero er að fara með staðal eins og bók án höfundar.

Page 9: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Zotero – vitnað í heimildir Þessar leiðbeiningar miða við Word á Windows

1. Opnaðu Word. Ef forritið er rétt sett upp hjá þér birtist flipi sem lítur svona út:

2. Skrifaðu inn texta og settu bendilinn svo þar sem þú vilt setja heimildina inn í textann.

3. Smelltu á Add-Ins-flipann. Ef þessi flipi sést ekki, farðu þá eftir leiðbeiningum um

uppsetningu á Zotero á heimasíðu BUHR.

4. Í valmyndinni sem birtist skaltu smella á táknið lengst til vinstri:

5. Þá birtist þessi gluggi þar sem þú getur valið þann staðal sem þú vilt nota í ritgerðinni þinni,

t.d. APA

Smelltu á Í lagi. (Athugaðu að þú velur staðalinn bara í fyrsta skipti sem þú setur inn heimild,

þessi gluggi ætti því ekki að birtast nema einu sinni.)

Page 10: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

6. Þá birtist annar gluggi þar sem þú getur valið í hvaða heimild þú vilt vitna. (Athugaðu að hér

býðst þér að velja úr þeim heimildum sem þú hefur sett inn í þitt Zotero, Mitt safn)

7. Veldu heimildina og smelltu á Í lagi.

8. Þá kemur heimildin inn þar sem bendillinn er í skjalinu:

9. Á sama hátt getur þú sett inn fleiri heimildir með því að endurtaka punkta nr 4. 6, 7 og 8.

Aðrar leiðir til að vitna í heimildir

Að nefna höfundinn í texta, og hafa bara ártal í tilvitnun í sviga Stundum vill maður nefna höfund greinarinnar í textanum sínum, þannig að tilvitnunin sé bara ártal í

sviga. Þetta getur maður gert, með smá fráviki frá leiðbeiningunum hérna að ofan. Mismunurinn felst

í lið 6. Áður en þú smellir á Í lagi skaltu haka við Suppress Author:

Tilvísunin birtist þá svona:

Page 11: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Að vitna í fleiri en eina heimild í sama sviganum Þetta er líka gert í valmyndinni sem er sýnd í lið 6 hér fyrir ofan. Þegar hún birtist skaltu smella á

Multiple Sources:

Þá breytist valglugginn aðeins og lítur nú svona út:

Í glugganum í miðjunni getur þú valið eina og eina heimild í einu og bætt þeim við listann með því að

smella á örina sem bendir til hægri (græn á myndinni hér fyrir ofan). Þú getur fjarlægt úr listanum

með því að smella á örina sem bendir til vinstri, og með örvunum sem benda upp og niður getur þú

raðað röð heimildanna sem þú ert að fara að vitna í. Að þessu loknu smellir þú á Í lagi og þá gæti

heimildin litið út svipað og þessi hér:

Að vitna í blaðsíðutal fyrir beinar tilvitnanir Þegar beinar tilvitnanir eru notaðar þarf að geta

blaðsíðutals. Þetta getur þú gert, með smá fráviki frá

leiðbeiningunum hérna að ofan. Mismunurinn felst í

lið 6. Áður en þú smellir á Í lagi skaltu skrifa

blaðsíðutalið hjá Page:

Þá getur heimildin litið út svipað og þessi hér:

Page 12: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Heimildaskrá í Zotero Þessar leiðbeiningar miða við Word á Windows

1. Nú ertu búin að nota Zotero til að setja inn tilvísanir og ætlar að gera heimildaskrá yfir

tilvísanirnar. Opnaðu Word-skjal og settu inn tilvísanir í heimildir (sjá leiðbeiningar á vefsíðu

BUHR).

2. Settu bendilinn aftast í skjalið (eða þar sem þú vilt fá heimildaskrána inn). (Getur skrifað

Heimildaskrá eða References í línuna fyrir ofan)

3. Veldu þriðja tákn frá vinstri í Zotero-valmyndinni (í Add-Ins-flipanum):

4. Þá ætti heimildaskráin að vera komin inn:

5. Lestu heimildaskrána yfir og lagaðu hana til, t.d. til að tryggja að hún standist íslensk viðmið.

(Hér fyrir ofan þarf t.d. að breyta & í og.)

Page 13: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

APA á íslensku í Zotero Fyrir þá sem skrifa á íslensku hefur hingað til verið nauðsynlegt að þýða heimildaskrána úr ensku;

breyta „Retrieved from“ í „Sótt af“, „Eds.“ í „ritstj.“ o.þ.h. Vegna þess að Zotero er „open source“ er

hægt að breyta bæta og laga eftir því sem hentar, t.d. þýða staðal yfir á íslensku. Styrmir Magnússon

nemandi í HÍ hefur þýtt APA yfir á íslensku til eigin nota, og hefur góðfúslega veitt okkur leyfi til að

nota þýðinguna. Athugið að þetta er ekki lokaútgáfa þýðingarinnar, heldur handrit sem sífellt er verið

að vinna í til þess að bæta þýðinguna enn frekar, en þetta er mikil hjálp við þá sem skrifa á íslensku.

Hvernig á að setja íslenska staðalinn upp (þú þarft að vera búin/-n að setja Zotero upp, sjá

leiðbeiningar á heimasíðu BUHR):

1. Byrjið á að hlaða þessu skjali niður á eigin tölvu (Windows-notendur hægrismella og vista

sem /save as Leggðu á minnið hvar þú vistar skjalið). Á netinu finnurðu skjalið á þessari slóð:

http://www.ru.is/media/skjol---bokasafn/apa_isl.csl

2. Opnið Zotero (smellið á táknið neðst í hægra horni vafrans).

3. Smellið á Actions valmyndina ( ) og veljið Preferences. Nýr gluggi opnast.

4. Veljið Cite og þar undir Styles-flipann.

5. Smellið á hnappinn með + merkinu.

6. Þá birtist gluggi þar sem þú þarft að finna skjalið sem þú hlóðst niður. Veldu skjalið og smelltu

á Open / Opna.

7. Veldu install í litla glugganum sem opnaðist.

8. American Psychological Association – Íslenskt hefur þá bæst í listann.

9. Smellið á OK/Í lagi til að loka glugganum.

Page 14: Zotero sett upp á Windows stýrikerfi · Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega

Staðlar í Zotero / APA Þar sem APA-staðallinn er búinn til fyrir hugvísindasvið hefur ekki verið hugsað fyrir því hvernig á að

vitna í staðla (ekki er hægt að velja staðal sem tegund heimildar). Skásta leiðin til að leysa þetta í

Zotero er að fara með staðalinn eins og bók án höfundar.

Titilinn er ágætt að skrá svona (til dæmis): EN 1992-1-1: Eurocode 2: Design of concrete structures.

Part 1-1: General rules and rules for buildings.

Ekki skrá neinn höfund, en settu staðlasamtökin sem bera ábyrgð á útgáfunni í Útgefandi, t.d.

European Committee for Standardization, eða Staðlaráð Íslands. (Muna að setja útgáfustað í

Staðsetning). Setjið útgáfuár í Dagsetning. Og svo kemur trikkið: Setjið titilinn eins og hann á að

birtast í tilvitnun í texta í sviðið Short Title, t.d. EN 1992-1-1. Tilvitnun í texta samanstendur af Short

Title og ári, og yrði þá eftirfarandi: (EN 1992-1-1, 2004)

Dæmi: